Greta segir Ísraelsmenn illmenni en þiggur brauð þeirra með bros á vör

 

greta3Greta Thunberg hatar Ísrael og segir þá illmenni jarðar. Samt tók hún skælbrosandi við brauði úr hendi hermanns illmennskunnar. Klukkan tvö aðfaranótt mánudags fóru ísraelskir hermenn um borð í seglskipið Madleen. Tólf manns voru um borð, þar á meðal atvinnumótmælandinn Greta Thunberg, sem reyndi að komast inn í Gaza. Ísrelski herinn tók hjálparsendingu aðgerðarhópsins og sendir áfram til Gaza.

Áður en Greta fór í þessa ferð tjáði hún sig margsinnis á samfélagsmiðlum um hvílík illmenni stjórni Ísrael. Greta hefur lagt loftslagsmálin á hilluna til að verða atvinnumótmælandi gegn Ísrael með þá kröfu að Ísraelsmenn láti hryðjuverkasveitir Hamas í friði á Gaza.

Ferð aðgerðasinnana mistókst þegar hermenn Ísraelshers tóku bátinn í sína vörslu. Aðgerðasinnarnir hafa birt mynd á Telegram af sér með uppréttar hendur sem tekin var í eftirlitsmyndavél um borð. Skömmu síðar slitnaði samband við skipið.

Þrátt fyrir allan áróður gegn Gyðingum, þá tók Gréta á móti brauði og drykk úr hendi ísraelska hermannsins. Utanríkisráðuneytið gaf út eftirfarandi tilkynningu:

„Greta Thunberg er á leiðinni til Ísraels í öruggum höndum og í góðu skapi.“

 

Sjálfsmyndatöku lokið á lúxusskútunni

Utanríkisráðuneyti Ísraels segir að allir áhrifavaldar um borð í skipinu séu óhultir. Hjálparföng, þar á meðal matur, sem var um borð í seglskútunni verður sendur til Gaza. Ráðuneytið kallar skútuna „Sjálfsmyndatökuskútuna“ - Selfie Yacht - og vísar til þess að aðgerðasinnarnir hafi lítið gert annað en að taka sjálfsmyndir á lúxusskútunni. Utanríkisráðuneytið skrifar:

„Þau hafa fengið vatn og brauð. Sýningunni er lokið.“

Varnarmálaráðherra Ísraels, Israel Katz, segir Gretu Thunberg og vini hennar vera stuðningsmenn Hamas. Ráðherann segist muna sýna skipverjum myndbandsupptökur af hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael þann 7. október 2023, áður en aðgerðasinnunum verður flogið til baka til heimalanda sinna.


mbl.is Skútan heldur ótrauð áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Já Gústaf, illmenni eru þeir sannarlega, en þetta var nú ekkert tannbursta bros hjá stelpunni, eða þú meinar að eðlilegra hefði verið að ulla og skyrpa við handtökuna?

Ætli þeim standi þá líka til boða skoðunarferð um illræmd fangelsi Ísraela, þau sem Rauði krossin fær ekki einu sinni aðgang að, svona til að geta borið vitni um að öll mannréttindi séu þar í heiðri höfð?

Jónatan Karlsson, 9.6.2025 kl. 12:43

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sæll Gústaf.

Í athugasemd við síðustu færslu þína skoraðir þú á mig að útskýra "hvernig þú ætlar að koma forgangsröðun laga ESB inn í 1. grein stjórnarskrárinnar, eftirfarandi setningu: Alþingi og forseti Íslands fara saman með löggjafarvaldið."

Svo virðist þú hafa lokað fyrir athugasemdir við þá færslu þannig að ég á ekki annars kost en að svara þessari áskorun hér.

Það er ekkert til sem heitir "lög ESB" á Íslandi enda hefur enginn löggjafarvald hér á landi nema Alþingi og forseti Íslands eins og þú bentir réttilega á að kemur fram í 1. gr. stjórnarskrár. Ísland er ekki í ESB og þess vegna hafa reglur sem koma frá ESB ekkert lagagildi sem slíkar hér á landi, ólíkt því sem gildir innan ESB þar sem reglur sambandsins hafa bein lagaáhrif, sem um leið útilokar aðild Íslands þar sem slíkt fyrirkomulag bryti í bága við stjórnarskránna.

Frumvarpið sem um ræddi í fyrri athugasemd snýst eingöngu um innbyrðis forgang íslenskra laga sem Alþingi hefur sett, enda getur enginn annar sett íslensk lög. Víða í íslensku lagasafni má finna ákvæði um innbyrðis forgangsröð íslenskra laga sem eru eldri en EES samningurinn og þau hafa aldrei verið talin brjóta í bága við stjórnarskrá, enda getur Alþingi í krafti löggjafarvalds síns alltaf ákveðið hvaða lög skuli gilda hvenær og vikið til hliðar öðrum ósamrýmanlegum lögum.

Guðmundur Ásgeirsson, 9.6.2025 kl. 14:36

3 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Jónatan: Gyðingar eru nú ekki meiri illmenni en svo að þeir bjóða upp á brauð og vatn eins og frelsarinn forðum. Og ekki virðist Greta hafa verið neitt hrædd við að innbyrða vistir hinna hræðulegu illmenna Gyðinga sem hún hefur pönkast á við hvatningu hryðjuverkamanna Hamas. Gyðingarnir veita henni ásamt öðru fylgdarliði í sjálfsmyndatökulúxusfleyinu smá kynningu á því hvað hryðjuverkasveitirnar gerðu í verstu blóðtöku Gyðinga eftir Helför nazista og Hitlers í seinni heimsstyrjöldinni. Og sænska ríkisstjórnin ætlar ekkert að flýta sér að aðstoða Gretu, þar sem hún braut gegn tilmælum sænska utanríkisráðuneytisins með því að fara í þessa auglýsingaferð fyrir Hamas og hefur þar að auki staðið fyrir símaárásum á utanríkisráðuneytið sem hefur tafið fyrir öðrum mikilvægum störfum þess.

Gústaf Adolf Skúlason, 9.6.2025 kl. 20:37

4 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Sæll Guðmundur, ég hef tímann stillt á einn sólarhring sem kannski er of knappt en allt í góðu að skila skilaboðum hér. Mér sýnist þú missa að verið er að forgangsraða erlendu lagavaldi EES fram yfir það íslenska sbr. orðalag frumvarpsins með bókun 35:

Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað. Sama á við um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum ef þau eru ósamrýmanleg öðrum stjórnvaldsfyrirmælum.

Lög EES eru ekki samin af Alþingi, heldur skrímslinu í Brussel.

Gústaf Adolf Skúlason, 9.6.2025 kl. 20:41

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sæll Gústaf.

Ég missti ekki af neinu, ég veit nákvæmlega hvernig innleiðingarferlið virkar enda lærði ég það í háskóla. Ég veit líka nákvæmlega hvernig frumvarpið er orðað enda búinn að lesa það ásamt greinargerð þess í þaula oftar en einu sinni ásamt fjölda annarra gagna um málið.

Enginn setur íslensk lög nema Alþingi enda hefur engin önnur stofnun heimild þess samkvæmt stjórnarskránni. Stjórnarfrumvörp sem eru lögð fyrir Alþingi eru samin í íslenskum ráðuneytum, hvort sem um er að ræða séríslensk mál eða mál sem snúa að innleiðingu á reglum sem leiða af þjóðréttarsamningum og hvort sem viðkomandi samningur er EES samningurinn, Mannréttindasáttmáli evrópu, Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna eða einhver annar þjóðréttarsamningur.

Með því að ákveða innbyrðis forgangsröð íslenskra laga sem Alþingi hefur sett til að innleiða reglur samkvæmt þjóðréttarsamningum er ekki verið að forgangsraða neinu "erlendu lagavaldi" heldur einfaldlega verið að forgangsraða því sem Alþingi hefur ákveðið í krafti síns lagavalds að skuli vera íslensk lög. Svo má hafa skoðun á því hvort að tilteknar reglur sem Alþingi ákveður að lögfesta séu góðar eða slæmar, hver svo sem ástæðan er fyrir því að það var ákveðið.

Fjölmargar góðar reglur hafa verið lögfestar sem endurspegla þjóðréttarsamninga en það eru örugglega líka til dæmi um hið gagnstæða og um kosti þeirra og galla er sjálfsagt að ræða. Að halda því fram að þegar Alþingi gerir slíkt sé eitthvað "erlent lagavald" á ferðinni er aftur á móti bara samsæriskenning sem ekki er fótur fyrir.

Meira að segja í sjálfri stjórnarskránni eru ákvæði sem hafa verið sett til að innleiða reglur samkvæmt þjóðréttarlegum samningum og aldrei hefur neitt verið talið því til foráttu. Þvert á móti eru flestir sammála um að í því hafi falist talsverðar réttarbætur fyrir Íslendinga.

Guðmundur Ásgeirsson, 9.6.2025 kl. 21:41

6 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Sæll Guðmundur, það eru rökþrot að nota orðið samsæriskenning sem nær þá væntanlega yfir fyrrverandi Hæstaréttadómara Jón Steinar Gunnlaugsson sem hefur þá afstöðu sem að þínu viti er samsæriskenning. Það vantar eitthvað í málflutninginn þegar maður sér ekki Evrópusambandið í dæminu um EES samninginn og bókun 35 og breytir því í innanlands lagatúlkun svona rétt eins og Ísland væri bara að semja við sig sjálft. 

Þetta eru svona álíka rök eins og ef maður héldi fram hjá konunni og tæki viðhaldið heim og reyndi að telja konunni sinni trú um að nærvera viðhaldsins á heimilinu væri bara tæknilegt heimilismál enda yrði hún að samþykkja þá nýju reglu að í hvert sinn sem hún og viðhaldið væru ósammála, þá réði viðhaldið. Síðan segði ég við konuna að hún væri samsæriskenningarsmiður ef hún færi að malda í móinn. 

Reyndu betur....

Gústaf Adolf Skúlason, 10.6.2025 kl. 02:40

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband
OSZAR »